Bjarni Ólafsson AK 70

2909. Bjarni Ólafsson AK 70 ex Fiskeskjer. Ljósmynd Hilmar Örn Kárason 2021. Hilmar Örn Kárason skipverji á Venusi NS 150 tók þessa mynd á loðnumiðunum í morgun en hún sýnir Bjarna Ólafssyni AK 70 með nótina á síðunni. 600 tonna kast hélt Hilmar. Runólfur Hallfreðsson ehf. keypti skipið til landsins árið 2015 en það var … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70

Suðurey VE 12

130. Suðurey VE 12 ex Júpíter ÞH 61. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Suðurey VE 12 hét upphaflega Gerpir NK 106 og var smíðaður í Þýskalandi fyrir 1960 fyrir Bæjarútgerð Neskaupsstaðar. Gerpir NK 106 var seldur Júpíter h/f í Reykjavík árið 1960 og fékk þá nafnið Júpíter RE 161. Hrólfur Gunnarsson skipstjóri keypti Júpíter 1978 og ári … Halda áfram að lesa Suðurey VE 12

Roaldsen við bryggju í Egersund

IMO 9223291. Roaldsen R-80-ES. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson 2021. Baldur Sigurgeirsson vélstjóri myndaði Roaldsen R-80-SE í morgun en þetta glæsilega skip lá við bryggju í heimahöfn sinni Egersund. Roaldsen var smíðað árið 1999 og er 1185 GT að stærð. Lengd skipsins er 59 metrar og breiddin 11. Aðalvélin er 3261 hestafla MAK. Eigandi er Roaldsen Kornelius … Halda áfram að lesa Roaldsen við bryggju í Egersund

Sextíu ár frá því að Skálabrekkufeðgar hófu útgerð

699. Njörður ÞH 44 ex Njörður TH 44. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Í dag 1. mars eru sextíu ár síðan Olgeir Sigurgeirsson í Skálabrekku á Húsavík stofnaði til útgerðar með sonum sínum Sigurði Valdimar og Hreiðari Ófeig. Síðar kom þriðji sonurinn, Jón, inn í eigendahópinn. Þá keyptu þeir feðgar Njörð ÞH 44 af Sigurbirni Kristjánssyni ofl. … Halda áfram að lesa Sextíu ár frá því að Skálabrekkufeðgar hófu útgerð