
Hulda GK 17, nýsmíði frá Trefjum, var sjósett í Hafnarfirði í dag og tók Maggi Jóns þessa mynd af henni við bryggju.
Hulda er eins og fram kom í gær af gerðinni Cleopatra 40BB en hér fylgja með tvær myndir sem Maggi tók í gær þegar hún var tilbúin til sjósetningar.
Á myndunum er einnig Ársæll Sigurðsson HF 80.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution