
Það hafa áður birst hér myndir af rækjutogaranum Merike og það bæði í bláa litnum sem var á honum þegar hann var keypt frá Grænlandi og þeim Reyktalsrauða.
En hér koma fyrstu myndirnar sem birtast af togaranum í rauða litnum á miðunum því þær fyrri voru teknar í Hafnarfirði þegar hann kom úr slipp.
Merike EK 1802 var smíðaður fyrir Grænlendinga í Danmörku árið 2002 og hét áður Regina C. Togarinn er 70 metrar á lengd og 15 metra breiður og er með heimahöfn í Tallinn í Eistlandi.
Það var Eiríkur Sigurðsson sem tók þessar myndir af Merike (í rauða litnum) í gær en hina fyrri (í bláa litnum) í ágústmánuði 2019.
Eiríkur er skipstjóri á Reval Viking sem er í eigu útgerðafyrirtækisins Reyktal líkt og Merike.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution