
Maggi Jóns tók þessar myndir í dag þegar rækjutogarinn Merike EK 1802 kom úr flotkvínni og að bryggju í Hafnarfirði.
Það voru Hamar og Grettir sterki sem sáu um að koma Merike að bryggju.
Merike EK 1802 var smíðaður fyrir Grænlendinga í Danmörku árið 2002 og hét áður Regina C. Hann er í eigu útgerðafyrirtækisins Reyktal.
Togarinn er 70 metrar á lengd og 15 metra breiður og er með heimahöfn í Tallinn í Eistlandi.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution