972. Kristín GK 457 - 2158. Tjaldur SH 270 - 2262 Sóley Sigurjóns GK 200. Ljósmynd Baldursson 2019. Þorgeir Baldursson sendi síðunni þessa mynd sem hann tók í dag á Siglufirði. Hann er á Sóley Sigurjóns GK 200 þessa dagana og nýtti birtuna í dag til að senda drónann sinn á loft. Það var líf … Halda áfram að lesa Á Siglufirði í dag
Month: nóvember 2019
Hegranes SK 2 á toginu
1492. Hegranes SK 2 ex Rockall. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Hegranes SK 2 frá Sauðárkróki er hér á toginu einhvern tímann um 1990. Hegranesið var smíðað árið 1975 í Póllandi en keyptur til Íslands frá Lorient í Frakklandi árið 1977. Það var Útgerðarfélag Skagfirðinga sem keypti togarann og kom hann til heimahafnar á Sauðárkróki 4. … Halda áfram að lesa Hegranes SK 2 á toginu
V/S Þór á Skjálfanda sumarið 2012
2769. Varðskipið Þór á Skjálfanda 21. ágúst 2012. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Varðskipið Þór kom í fyrsta skipti til Húsavíkur þann 21. ágúst árið 2012 og voru þessar myndir teknar á Skjálfanda þann dag. Varðskipið Þór, sem er flaggskip Landhelgisgæslunnar, var smíðað í ASMAR skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile og kom það til heimahafnar í Reykjavík … Halda áfram að lesa V/S Þór á Skjálfanda sumarið 2012
Náttfari ljósum prýddur
993. Náttfari ex Byrefjell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þeim fjölgar bátunum í Húsavíkurhöfn sem prýðast jólaljósum og í dag kom serían upp á Náttfara. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4. Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling … Halda áfram að lesa Náttfari ljósum prýddur
Hilmir ST 1
565. Hilmir ST 1 ex Hilmir GK 498. Hilmir ST 1 kemur hér til löndunar á Húsavík sumarið 1993 að mig minnir. Báturinn var þá á úthafsrækjuveiðum. Hilmir, sem hét alla tíð Hilmir, var smíður í Dráttarbraut Keflavíkur h/f árið 1942 og hafði smíðanúmer 1 hjá stöðinni. Hann var smíðaður fyrir Sigurbjörn Eyjólfsson í Keflavík … Halda áfram að lesa Hilmir ST 1
Jólaljósin komin upp á Faldinum
1267. Faldur ex Faldur ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Jólaljósin eru komin upp á hvalaskoðunarbátnum Faldi þar sem hann liggur í Húsavíkurhöfn. Það var því skundað niður á stétt núna á sjötta tímanum og teknar nokkrar myndir og hér er ein þeirra. Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. … Halda áfram að lesa Jólaljósin komin upp á Faldinum
Sigurfari ST 30
1916. Sigurfari ST 30 ex Sigurfari ÓF 30. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Rækjuskipið Sigurfari ST 30 frá Hólmavík liggur hér við bryggju á Húsavík undir lok síðustu aldar. Ekki er langt síðan fjallað var um skipið hér og birt mynd af því sem Sigurfara ÓF 30. Sigurfari hét upphaflega Stafnes KE 130 og var smíðað í … Halda áfram að lesa Sigurfari ST 30
Merike komin í rauða litinn
IMO 9227534. Merike EK 1802 ex Regina C. og 2489. Hamar. Ljósmynd Maggi Jóns 2019. Maggi Jóns tók þessar myndir í dag þegar rækjutogarinn Merike EK 1802 kom úr flotkvínni og að bryggju í Hafnarfirði. Það voru Hamar og Grettir sterki sem sáu um að koma Merike að bryggju. Merike EK 1802 var smíðaður fyrir Grænlendinga … Halda áfram að lesa Merike komin í rauða litinn
Hersir HF 227
1626. Hersir HF 227 ex Hafrenningur GK 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. 28. júní 1982 bættist í íslenska fiskiskipaflotann, skip sem keypt var notað frá Danmörku. Skip þetta hét upphaflega Michelle Cherie og er smíðað hjá Sakskbing Maskinfabrikk og Skibsværft í Danmörku árið 1976 og er smíðanúmer 20. Þegar skipið kom til landsins varþað keypt af … Halda áfram að lesa Hersir HF 227
Særif SH 25 mun veiða fyrir Íslandssögu
2822. Særif SH 25 ex Hálfdán Einarsson ÍS 128. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Íslandssaga ehf. á Suðureyri hefur náð samningum við fyrirtækið Melnes ehf. á Rifi og mun bátur síðarnefnda fyrirtækisins veiða fyrir Íslandssögu næsta mánuðinn. Það er bb.is á Ísafirði sem greinir frá þessu og þar segir m.a: það er Særif SH 25 30 tonna … Halda áfram að lesa Særif SH 25 mun veiða fyrir Íslandssögu









