
Humarbáturinn Ársæll ÁR 66 lætur hér úr höfn í Þorlákshöfna sumarið 2009 en þá var hann í eigu Atlantshumars ehf.
Báturinn hét upphaflega Ársæll en var Sigurðsson GK 320 og með heimahöfn í Hafnarfirði. Síðar hét hann lengi vel Arney KE 50.
Því næst Auðunn ÍS 110, Nansen ÍS 16, Steinunn SF 10, Ársæll SH 88, Dúi ÍS 41 og loks Ársæll ÁR 66.
Báturinn var smíðaður í Brattavogi í Noregi árið 1966 fyrir Ársæl s/f í Hafnarfirði. Yfirbyggður og skipt um brú á Akureyri um 1980.
Eftir að Skinney-Þinganes hf. keypti Auðbjörgu ehf. í Þorlákshöfn árið 2016 var Ársæll seldur í brotajárn.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.