
Maggi Jóns sendi mér þessar myndir sem sýna Hornfirðingana Skinney SF 20 og Þóri SF 77 fyrir og eftir breytingarnar sem fram fóru í Póllandi en skipin komu til landsins á dögunum.
Skipin voru smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði.

Hér liggja systurskipin í Hafnarfjarðarshöfn þar sem vinnslulína verða sett í þau en hún er hönnuð og smíðuð af Micro í Garðabæ í samstarfi við starfsfólk Skinneyjar-Þinganess.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution