
Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 kemur hér að landi í Grindavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar.
Báturinn var smíðaður í Uksteinvik í Noregi árið 1963 hjá skipasmíðastöðinni M. Kleven Mek. Verksted AS.í Ulsteinvík.
Þorbjörn h/f í Grindavík lét smíða skipið og átti það alla tíð uns það strandaði við Hópsnes við Grindavík og ónýttist 12.febrúar 1988. Mannbjörg varð.
Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 var lengdur og yfirbyggður 1982. Eftir það mældist hann 175 brl. að stærð.
Þá var skipt um aðalvél 1978, í stað 450 hestafla Stork kom 750 hestafla Caterpillar.
Með því að smella á myndina er hgæt að skoða hana í hærri upplausn.