Bliki EA 12

162. Bliki EA 12 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Bliki EA 12 er hér á netaveiðum úti fyrir Norðurlandi snemma á níunda áratug síðustu aldar.

Bliki EA 12 hét upphaflega Ólafur Tryggvason SF 60 og var smíðaður í Noregi 1960 fyrir Tryggva Sigjónsson h/f  á Hornafirði.

1976 er báturinn seldur til Hafnarfjarðar þar sem hann fær nafnið Hringur GK 18. Kaupendur Aðalsteinn og Helgi Einarssynir ásamt Ingimundi Jónssyni. Hringur var lengdur 1978.

Selt í júní 1980 Blika h/f á Dalvík og þar fær hann Blikanafnið og EA 12. Yfirbyggður og skipt um brú 1985 að mig minnir. Síðar fékk hann nöfnin Arnar ÁR 55, Sólrún EA 351, Arnar SH 157 og Fiskaklettur HF 123 áður en hann var seldur til Noregs. 

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.

2 athugasemdir á “Bliki EA 12

  1. Var ekki skipt um brú á Ólafi tryggvasyni þegar að kviknaði í honum fyrir mörgum árum,ég hef séð myndir af honum eftir brunan ég man ekki betur en að brúinn hafi nánast bráðnað niður en kanski var hún rikkuð til.

    Líkar við

Færðu inn athugasemd