Vilhelm Þorsteinsson EA 11

2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018.

Vilhelm Þorsteinsson EA 11 liggur nú við bryggju á Akureyri með jólaseríuna uppi. Það var vel við hæfi að taka myndir af þessu mikla aflaskipi ljósum prýtt því þetta eru síðustu jól hans í íslenska fiskisskipaflotanum.

Eins og kunnugt er hefur skipið verið selt til Rússlands en það kom nýtt til landsins í september árið 2000.

Í frétt á vef Síldarvinnslunnar kom fram þegar skipið landaði úr sinni síðustu veiðiferð að það hafði fiskað um 968 þúsund tonn frá því að byrjað var að gera það út.

2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.

Færðu inn athugasemd