
Sveinbjörn Jakobsson SH 10 kemur hér til hafnar í Ólafsvík um árið. Upphaflega Drífa RE 10 smíðuð hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi 1967.
Báturinn var endurbyggður í Ósey í Hafnarfirði 1997 og fékk nafnið Sæbjörg ST 7. Hann hafði heitið ýmsum nöfnum í millitíðinni. Það var svo árið 2006 sem Sæbjörgin var keypt til Ólafsvíkur þar sem hún fékk núverandi nafn.
Sveinbjörn Jakobsson SH 10 er gerður út af Útgerðarfélaginu Dvergi hf. í Ólafsvík og er skráður 101 brl./175 BT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.