
Gnýfari SH 8 frá Grundarfirði er hér að draga netin á Breiðafirði á vetrarvertíð en þaðan var hann gerður út árin 1987-1988.
Báturinn hét upphaflega Háborg NK 77 frá Neskaupstað. Hann var smíðaður 1976 hjá Trésmiðju Austurlands h/f á Fáskrúðsfirði og afhentur árið 1976.
Báturinn, sem er 17 brl. að stærð og heitir Haffari, var í Neskaupstað til haustsins 1980 en eftir það fór hann á talsvert flakk sem lesa má um hér.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution