Sigurður VE 15

183. Sigurður VE 15 ex Sigurður RE 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson Það er við hæfi að birta mynd af aflaskipinu Sigurði VE 15 en útför Kristbjörns Árnasonar, Bóba, skipstjóra á Sigurði fór fram frá Húsavíkurkirkju í dag. Bóbi lést þann 5. desember sl. á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík en hann var fæddur á Húsavík 18. … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15

Von ÞH 54

1432. Von ÞH 54 ex Vilborg ÞH 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Von ÞH 54 kemur hér til hafnar á Húsavík úr grásleppuróðri í aprílmánuði árið 2004. Sigurður skipstjóri í brúnni en hásetarnir Matti í Strandbergi og Gestur heitinn í Jörva við lúkarskappann. Von var smíðuð í Neskaupstað árið 1975 og ber nafnið Iða ÞH … Halda áfram að lesa Von ÞH 54

Steinunn kom að landi í dag

2966. Steinunn SF 10. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Steinunn SF 10 kom að landi á Hornafirði í hádeginu dag og tók Sigurður Davíðsson þessar myndir. Afli veiðferðarinnar var í 210 körum en Steinunn á eftir eina veiðiferð fyrir jólafrí. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Steinunn kom að landi í dag

Ágúst Guðmundsson GK 95

262. Ágúst Guðmundsson GK 95 ex Klængur ÁR 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ágúst Guðmundsson GK 95 kemur hér að landi í Grindavík um árið en hann var heimahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd.  Upphaflega hét báturinn Viðey RE 12 og var smíðuð fyrir Hraðfrystistöðina í Reykjavík. Smíðin fór fram í Noregi og kom báturinn í flotann … Halda áfram að lesa Ágúst Guðmundsson GK 95

Stapafell

1545. Stapafell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Olíuskipið Stapafell kemur hér til Húsavíkur um árið, myndi halda 1999. Stapafell var smíðað fyrir SÍS og Olíufélagið hf. í Þýskalandi árið 1979 og var 1532 brl. að stærð. Heimahöfn þess var Keflavík. Stapafell var selt úr landi árið 2001 en þá var það í eigu Olíudreifingar ehf. í Reykjavík … Halda áfram að lesa Stapafell

Brynjólfur farinn í pottinn

1752. Brynjólfur VE 3 ex Flatey ÞH 383. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2022. Brynjólfur VE 3 er nú kominn á endastöð í Belgíu þar sem hann verður rifinn í brotajárn. Tryggvi Sigurðsson tók þessa mynd á dögunum þegar Brynjólfur lét úr höfn í Vestmannaeyjum í síðasta skipti. Hér má skoða fleiri myndir af Brynjólfi. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Brynjólfur farinn í pottinn

Skálafell ÁR 50

100. Skálafell ÁR 50 ex Haförn SK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skálafell ÁR 50 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en upphaflega hét báturinn Hoffell SU 80.  Báturinn var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga árið 1959 í Noregi. Síðar hét hann Fagurey SH 237, Jórunn ÁR 237, Jón Jónsson SH 187, Haförn ÁR 115, Haförn … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 50

Vonin KE 10 á Húsavík

1631. Vonin KE 10 ex Lundaberg AK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Vonin frá Keflavík er á Húsavík þessa dagana en Köfunarþjónusta Sigurðar er að vinna við dráttarbrautina í Húsavíkurslipp. Vonin hét upphaflega Fálkinn NS 325 og var smíðaður í Bátalóni árið 1982 fyrir Bakkfirðinga. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Vonin KE 10 á Húsavík