
Ásdís ÓF 9 kemur hér að landi á Siglufirði en Gunnar Gunnarsson ehf. gerir hana út til handfæraveiða.
Ásdís hét upphaflega Björn SH og var smíðaður hjá Bátahöllinni á Hellisandi árið 2003.
Árið 2009 fær hann Ásdísarnafnið og er RE 15 en samkvæmt vef Fiskistofu hét hann áður Dagrún RE 15.
Frá árinu 2013 hefur Ásdís, sem er rúm 6 BT að stærð, verið ÓF 9 með heimahöfn á Ólafsfirði.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.