
C Jane GR 6 – 287, nýr grænlenskur fiskibátur með heimahöfn í Nuuk, kom til Grindavíkur í gær á heimleið sinni frá Danmörku þar sem han var smíðaður.
Báturinn var smíðaður hjá Bredgaard boats í Rødbyhavn í Danmörku og er hann úr trefjaplasti. Hann var sjósettur þann 15. júní síðastliðinn.
C Jane er 14,99 metrar á lengd, 5,9 metrar á breidd og 50 brúttótonn og verður m.a gerður út til línuveiða. Erindi hans til Grindavíkur var að sækja þangað línubetingavél.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn
By clicking on the images you can view them in higher resolution