2706. Sólrún EA 151 ex Tumi EA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Línubáturinn Sólrún EA 151 kom að landi á Dalvík í dag, Sumardaginn fyrsta og veðrið eins og best gerist á þessum árstíma. Gleðilegt sumar og takk fyrir innlitið á síðuna í vetur. Sólrún EA 151 er gerð út af samnefndu fyrirtæki á Árskógssandi … Halda áfram að lesa Sólrún kom að landi á Dalvík
Month: apríl 2022
Húni II HU 2
108. Húni II HU 2 ex Sigurður Lárusson SF 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Húni II HU 2 lætur hér úr höfn í Hafnarfirði um árið en þaðan var hann gerður út til hvalaskoðunar um tíma. Upphaflega hét báturinn Húni II HU 2 með heimahöfn í Höfðakaupstað sem nú heitir Skagaströnd. Báturinn var smíðaður 1963 eftir … Halda áfram að lesa Húni II HU 2
Happasæll KE 94
13. Happasæll KE 94 ex Búddi KE 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Netabáturinn Happasæll KE 94 kemur hér að landi í Keflavík í marsmánuði árið 2013. Báturinn var gerður út af Happa hf. í Keflavík. Báturinn er enn til og ber sama nafn en er BA 94 og heimahöfnin er Bíldudalur. Upphaflega Árni Þorkelsson KE … Halda áfram að lesa Happasæll KE 94
Fleygur ÞH 301
1540. Fleygur ÞH 301 ex Eyrún ÞH 268. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Fleygur ÞH 301 kemur hér til hafnar á Húsavík í byrjun aldarinnar, sennilega árið 2001. Eiríkur Marteinsson gerði hann út á þessum tíma með sjómennsku á Sigurðu VE 15. Eftir fráfall hans í ársbyrjun 2003 tóku Hörður sonur hans og Jón Ólafur Sigfússon … Halda áfram að lesa Fleygur ÞH 301
Gleðilega páska – Happy easter
Vor við Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Með þesssari mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn vorið 2001 fylgir páskakveðja til lesenda síðunnar um allan heim. With this photo from Húsavík in the spring 2001 easter greetings are sent from Húsavík to readers all around the world. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Gleðilega páska – Happy easter
Arney KE 50 kemur að bryggju
1014. Arney KE 50 ex Ársæll Sigurðsson GK 320. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Netabáturinn Arney KE 50 kemur hér að bryggju í Sandgerði á vetrarvertíð um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Arney hét upphaflega Ársæll Sigurðsson GK 320, smíðaður Brattvaag í Noregi 1966 fyrir Ársæl s/f í Hafnarfirði. Lesa má nánar um bátinn hér. Með því að … Halda áfram að lesa Arney KE 50 kemur að bryggju
Donna SU 55
1175. Donna SU 55 ex Donna ST 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Donna SU 55 frá Breiðdalsvík er hér upp í slippnum á Akureyri vorið 2004. Báturinn hefur frá árinu 2006 heitið Erna HF 25. Hún hefur legið lengi í Hafnarfjarðarhöfn skráð sem skemmtiskip. Upphaflega hét báturinn Hafsúlan RE 77 og var smíðuð árið 1971 … Halda áfram að lesa Donna SU 55
Kristrún
2774. Kristrún RE 477 ex Kristrún RE 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Línu- og netaskipið Kristrún RE kom til hafnar á Akureyri í morgun og þá voru meðfylgjandi myndir teknar. Um skipið má lesa hér en það er Fiskkaup hf. sem gera það út til grálúðuveiða í net. 2774. Kristrún RE 477 ex Kristrún RE … Halda áfram að lesa Kristrún
Freri RE 73
1345. Freri RE 73 ex Ingólfur Arnarson RE 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Freri RE 73 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið en það var Ögurvík hf. sem gerði hann út. Freri hét upphaflega Ingólfur Arnarson RE 201, og var einn stóru Spánartogaranna svokölluðu og sá eini sem er enn í fiskiskipaflotanum. Hann var … Halda áfram að lesa Freri RE 73
Fisher Bank BL-937880
IMO 9193549. Fisher Bank BL-937880 ex Lerkur FD 1206. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Fisher Bank við slippkantinn í gær en hann hét áður Lerkur FD 1206 frá Runavík í Færeyjum. Hann hefur ásamt systurskipi sínu, Rókur FD 1205, verið seldur til Frakklands þar sem heimahöfnin verður Boulogne -Sur-Mer. Skipin eru í klössun í Slippstöðinni en … Halda áfram að lesa Fisher Bank BL-937880









