Nanna Ósk II ÞH 133 – Myndasyrpa

2793. Nanna Ósk II ÞH 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Eins og áður hefur komið fram á síðunni kom ný Nanna Ósk II ÞH 133 til heimahafnar á Raufarhöfn þann 5. nóvember árið 2010. Þessar myndir voru teknar daginn eftir, sama dag og ný Hófaskarðsleið var formlega vígð ef einhver skyldi hafa á huga á … Halda áfram að lesa Nanna Ósk II ÞH 133 – Myndasyrpa

Flatey kemur úr Flatey

7405. Flatey ÞH ex Fugl. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flatey er skemmtibátur í eigu Ingvars Sveinbjörnssonar á Húsavík og tók ég þessar myndir nú áðan þegar báturinn kom til hafnar á Húsavík. Ingvar og hans fjölskylda eiga húseignir í Flatey og nota bátinn til siglinga á milli Húsavíkur og eyjunnar. Þaðan var hann að koma … Halda áfram að lesa Flatey kemur úr Flatey

Niðurrif togarans Orlik í Njarðvíkurhöfn

Orlik við Norðurgarðinn í Njarðvík. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Vinna við að rífa togarann Orlik se, að legið hefur í Njarðvíkurhöfn er komin í gang aftur eftir að Umhverfisstofnun stöðvaði vinnu við það í september.  Jón Steinar tók þessar tvær myndir um helgina og sést að m.a er búið að rífa gálgana. Orlik við Norðurgarðinn … Halda áfram að lesa Niðurrif togarans Orlik í Njarðvíkurhöfn

Einar Guðnason ÍS 303 á strandstað við Gölt

2907. Einar Guðnason ÍS á strandstað við Gölt. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 14. nóvember 2019. Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á v/s Tý tók þessar myndir af Einari Guðnasyni ÍS 303 á strandstað við Gölt í mynni Súgandafjarðar. Einar Guðnason ÍS 303 var að koma úr línuróðri skömmu fyrir miðnætti í 13. nóvember þegar strandið varð. … Halda áfram að lesa Einar Guðnason ÍS 303 á strandstað við Gölt

Sjødis á siglingu inn Jössingfjörðinn

Sjødis R-17-SK. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson 2019. Sjødis heitir hann þessi eikarbátur sem Baldur Sigurgeirsson myndaði í Jössingfirðinum norska í dag. Báturinn, sem í dag er frístundabátur í eigu Dalane Folkemuseum í Egersund, var smíðaður hjá Eidsbotten Båtbyggeri í Kopervik og afhentur frá þeim í janúar 1966. Sjødis er 17,53 metrar að lengd, breiddin er 5,21 … Halda áfram að lesa Sjødis á siglingu inn Jössingfjörðinn

Hagbarður TH 1

538. Hagbarður TH 1. Ljósmynd Steingrímur Árnason. Hagbarður TH 1 frá Húsavík kemur hér til hafnar á Raufarhöfn drekkhlaðinn af síldarmiðunum. Myndina tók Steingrímur Árnason, Steini á Fossi, en hann var vélstjóri á bátum frá Húsavík. Hagbarður TH 1 var smíðaður í Reykjavík árið 1946 og eigandi hans Húsavíkurhreppur. Báturinn var 47 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Hagbarður TH 1

Týr við Grindavík á dögunum

1421. Týr úti fyrir Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir af varðskipinu Tý á dögunum er skipið var statt úti fyrir Grindavík. Týr var smíðaður í Aarhus Flydedok A/S í Danmörku árið 1975 en hér má lesa fróðleik um skipið. Varðskipið Týr úti fyrir Grindavík. Ljósmyndir Jón Steinar 2019. Með því … Halda áfram að lesa Týr við Grindavík á dögunum

Indriði Kristins BA 751

2907. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Indriði Kristins BA 751 sem hér sést koma til hafnar í Grindavík vorið 2016 fékk síðar nafnið Einar Guðnason ÍS 303 og var gerður út frá Suðureyri. Sú útgerð hlaut snöggan endi nú í vikunni þegar báturinn strandaði og ónýttist við Gölt í mynni Súgandafjarðar. Þyrla … Halda áfram að lesa Indriði Kristins BA 751

Salka og Fanney komnar í jólabúninginn

1470. Salka og 1445. fanney við bryggju á Húsavík í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þrátt fyrir að enn séu 30 dagar, 20 klukkustundir, 22 mínútur og 10 sekúndur til jóla (þegar þetta er skrifað) eru hvalaskoðunarbátarnir Salka og Fanney komnar í jólabúninginn. Ef síðuritara skjöplast ekki er það einum 4-5 dögum fyrr en á síðsta … Halda áfram að lesa Salka og Fanney komnar í jólabúninginn

Vestmannaey og Bergey á Akureyri

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma myndir af Vestmannaey VE 54 og Bergey VE 144 sem teknar voru á Akureyri með um fimm vikna millibilli. Myndin af Vestmannaey VE 54 var tekin þann 4. október sl. en Bergeyjarmyndin í fyrradag, 12. nóvember. 2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Svo … Halda áfram að lesa Vestmannaey og Bergey á Akureyri