
Eins og áður hefur komið fram á síðunni kom ný Nanna Ósk II ÞH 133 til heimahafnar á Raufarhöfn þann 5. nóvember árið 2010.
Þessar myndir voru teknar daginn eftir, sama dag og ný Hófaskarðsleið var formlega vígð ef einhver skyldi hafa á huga á að vita það.
Það var Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. á Raufarhöfn sem lét smíða bátinn, sem er af Cleopatra 38 gerð, hjá Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni standa bræðurnir Ragnar Axel og Hólmgrímur Jóhannssynir.
Nanna Ósk II ÞH 133 er 15 brúttótonn og gerð út í aflamarkskerfinu. Hér að neðan eru nokkrar myndir sem ég tók þennan dag.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution