
Línuskipið Hörður Bjönsson ÞH 260 kom til hafnar á Húsavík um kaffileytið í dag og þá var þessi mynd tekin.
Það er GPG Seafood ehf. sem á og gerir Hörð Björnsson út og er hann með heimahöfn á Raufarhöfn.
Upphaflega hét skipið Þórður Jónasson, fyrst RE 350 en lengst af EA 350. Smíðaður í Noregi 1964.
GPG keypti hann frá Stykkishólmi árið 2015 en þar hét hann Gullhólmi SH 201.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Þetta skip er búið að skila miklu í þjóðarbúið í þau 55 ár sem hann hefur verið hér.Hörður Björnsson skipstjóri til margra ára þarna um borð fiskaði mikið á hann hvort sem það var síld,loðna,bolfiskur eða rækja enda valinn maður í hverju rúmi þar um borð.
Líkar viðLíkar við