
Línubátur Stakkavíkur ehf., Katrín GK 266, kemur hér að landi í Grindavík sl. sunnudag.
Búið að lengja bátinn (1997), og stytta aftur (2006), ásamt því að byggja yfir frá því hann var smíðaður á Ísafirði 1988. Katrín hét Jón Helgason ÁR 12 upphaflega og var með heimahöfn í Þorkákshöfn.
Katrín GK 266 er 14,98 metrar að lengd. 3,8 metrar að breidd og mælist 25 Bt að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution