
Sigurborg SH 12 sem hér sést á á siglingu til Húsavíkur hét upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupsstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi 1966.
Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 var smíðaður fyrir Múla hf. á Neskaupstað en 1978 kaupir Gunnar I. Hafsteinsson í Reykjavík bátinn og fær hann nafnið Freyja RE 38.
1980 skipta Gunnar og Þórður Guðjónsson á Akranesi á skipum og fær Freyja nafnið Sigurborg sem hún hefur haldið fram á þennan dag.
Einkennisstafirnir fyrir utan AK 375 hafa verið KE 375 , VE 121 , HU 100 og SH 12 eins og áður segir.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.