
Víðir Trausti EA 517 er hér á siglingu á Eyjafirði um árið eftir breytingar í Slippstöðinni.
Þær fólust m.a í brúarskiptum auk þess sem byggt var yfir hann að framan. Áður var búið að lengja bátinn sem smíðaður var á Seyðisfirði 1971.
Það var Trausti h/f á Eskifirði sem lét byggja Víðir Trausta SU 517 sem kom til heimahafnar í fyrsta skipti þann 24. júlí 1971. Seldur á Hauganes vorið 1974.
Báturinn heitir Blíða SH 277 í dag.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.