Björgúlfur EA 312

2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018.

Björgúlfur EA 312 liggur nú við Slippkantinn á Akureyri prýddur jólaljósum.

Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár.

Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir í Tyrklandi. Kaldbakur EA kom fyrstur, síðan Björgúlfur EA og næst kemur Drangey SK og loks Björg EA.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.

Færðu inn athugasemd