
Skálaberg RE 7 kom til heimahafnar í Reykjavík í byrjun sumars árið 2013 en Brim h/f hafði keypt togarann haustið 2012 frá Argentínu.
Skálabergið var smíðað í Noregi 2003 fyrir færeyskt útgerðarfélag og hét Skálaberg KG 118. Skálabergið var gert út frá Færeyjum til ársins 2010 er það var selt til Argentínu. Þar fékk það nafnið Esperanza Del Sur.
Skipið er 74,50 metra langt, 16 metra breitt og er 3.435 brúttólestir. Það fór aldrei til veiða við Ísland og var selt til Grænlands og afhent vorið 2014.
Artic Prime Fisheries í Qagortog, sem Brim á hlut í, keypti Skálaberg og gaf því nafnið Ilivileq GR 2-201.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.
Sæll Hafþór.Er þessi ekki á leið til Rússlands.
Líkar viðLíkar við
Jú það hefur heyrts Orri.
Líkar viðLíkar við