Fjølnir GK 157

1136. Fjølnir GK 157 ex Ocean Breeze GK. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2018.

Línuskipið Fjølnir GK 157 er hér á leið til hafnar í Grindavík til löndunar síðasta vetur.

Fjølnir var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Íslands og kom það til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1970. Þá hét það Skrolsvik T-84-TN en Skagstrendingar nefndu hann Örvar HU 14. Síðar varð hann Örvar BA 14 og þá Rifsnes SH 44.

Vísir hf. í Grindavík kaupir bátinn þegar Hraðfrystihús Hellisands kaupir nýtt Rifsnes frá Noregi og fær hann þá nafnið Ozean Breeze og var m.a gerður út í Kanada. 

Eftir gagngerar breytingar í Gdansk í Pólland, sem m.a fólu í sér lengingu um níu metra auk þess sem íbúðahæð var sett undir brúna, kom báturinn til heimahafnar í Grindavík í desembermánuði 2015. Og þá undir því nafni sem hann ber í dag, Fjölnir GK 157.

1136. Fjølnir GK 157 á útleið frá Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.

Færðu inn athugasemd