
Viðey RE 50 sem hér kemur til Reykjavíkur í sumar er ein þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Tyrklandi.
Hinar eru Engey RE 91 og Akurey AK 10 en Viðey RE 50 var síðust í röðinni. Hún leysti Ottó N Þorláksson RE 203 af hólmi en eins og kunnugt er keypti Ísfélag Vestmannaeyja togarann af HB Granda.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.