
Tryggvi Sigurðsson tók þessa mynd í dag þegar loðnuskipið Sighvatur Bjarnason VE 81 kom til hafnar í Vestmannaeyjum.
Báturinn hét áður Kap VE 4 en fékk þetta nafn s. haust. Það er Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sem á skipið og gerir út.
Skipið hét upphaflega Jón Finnsson RE 506 og var smíðaður í Shiprepair Yard Gryfia í Stettin í Póllandi árið 1987.
Hér má lesa nánar um skipið og sögu þess.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution