IMO 9138329. Hamburg ásamt hafnsögubátnum Sleipni síðdegis í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun og þar var á ferðinni Hamburg sem hefur heimahöfn í Nassau á Bahamaeyjum. Hamburg, sem áður hér C.Columbus, var smíðað árið 1997. Það er 144 metra langt og mælist 15,067 GT að stærð. Það tekur … Halda áfram að lesa Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun
Month: maí 2022
Granit á útleið frá Tromsø
IMO 9796896. Granit H-11-AV. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Norski frystitogarinn Granit H-11-AV er hér á útleið frá Tromsø en Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking myndaði hann í morgun þegar hann var á landleið. Hann var smíðaður fyrir Halstensen Granit AS í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhentur í september árið 2017. Granit er 81,20 metrar að … Halda áfram að lesa Granit á útleið frá Tromsø
Jón Pétur að draga grásleppunetin
2033. Jón Pétur RE 411. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022 Jón Steinar tók þessar myndir af grásleppubátnum Jóni Pétri RE 411 í gær þar sem hann var að draga netin á Hraunsvíkinni. Jón Pétur var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1987 og lengdur tíu árum síðar. 2033. Jón Pétur RE 411. Ljósmyndir Jón Steinar … Halda áfram að lesa Jón Pétur að draga grásleppunetin
Hópsnes GK 77
2457. Hópsnes GK 77 ex Katrín SH 575. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Hópsnes GK 77 kemur hér að landi í Grindavík í gær. Stakkavík gerir hann út. Upphaflega hét báturinn Katrín RE 375 og var smíðaður árið 2000 hjá Bátagerðinni Samtak fyrir Rafn ehf. í Reykjavík. Sumarið 2006 varð báturinn SH 575 og heimahöfn Ólafsvík. … Halda áfram að lesa Hópsnes GK 77
Jóhanna Gísladóttir
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Jón Steinar tók þessar myndir í dag þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 hélt til veiða frá Grindavík. Hún landaði í morgun 214 körum sem gerir um það 70 tonn eftir þriggja sólarhringa túr á Eldeyjarbanka. 2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir
Hrafn GK 111 farinn áleiðis í pottinn
1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Síðdegis í gær 11. maí, á lokadegi vetrarvertíðar, sigldi línuskipið Hrafn GK 111 út frá Grindavík áleiðis til Ghent í Belgíu þar sem hann fer í pottinn víðfræga. Hrafn GK 111 hét upphaflega Gullberg VE 292 og var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111 farinn áleiðis í pottinn
Stefán Rögnvaldsson HU 345
616. Stefán Rögnvaldsson HU 345 ex Stefán Rögnvaldsson EA 345. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Stefán Rögnvaldsson HU 345 við bryggju á Húsavík sumarið 2009 en þá stundaði báturinn úthafsrælkjuveiðar úti fyrir norðurlandi. Báturinn hét upphaflega Jón Guðmundsson KE 4 og var smíðaður í Þýskalandi 1960 Hér má lesa nánar um bátinn en útgerðarfélagið Stefán Rögnvaldsson ehf. var … Halda áfram að lesa Stefán Rögnvaldsson HU 345
Steffano í Smugunni
ESKS. Steffano EK 16-01 ex Steffen C GR 6-22. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjutogaranum Reval Viking tók þessa mynd í Smugunni í gær en hún sýnir Steffano EK 16-02. Steffano sem er í eigu sama fyrirtækis og Reval Viking, Reyktal AS en þeir eru skráðir í Eistlandi með heimahöfn í Tallinn. … Halda áfram að lesa Steffano í Smugunni
Líf NS 24
7463. Líf NS 24 ex Líf GK 67. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Sómabáturinn Líf NS 24 er hér á siglingu í Húsavíkurhöfn í dag en báturinn er gerður út af Hafskip slf. og skráður með heimahöfn á Bakkafirði. Upphaflega hét báturinn Björg HF 211 og var smíðaður árið 1998 í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði. Sama … Halda áfram að lesa Líf NS 24
Falksea kom með salt til Húsavíkur
IMO 9250426. Falksea og Sleipnir í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Norska flutningaskipið Falksea kom með saltfarm til Húsavíkur rétt í þessu en skipið lagðist að Þvergarðinum. Falksea er 90 metra langt og 14 metra breytt. Mælist 2,999 GT að stærð. Smíðað árið 2002 og hét upphaflega Arklow Rambler. Falksea er með heimahöfn í Stavanger. Með … Halda áfram að lesa Falksea kom með salt til Húsavíkur









