1043. Jóhanna ÁR 206 ex Akurey SF 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Jóhanna ÁR 206 kemur hér að landi í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 2005. Jóhanna ÁR 206, sem fór í brotajárn árið 2019, hét upphaflega Hafdís SU 24 og var með heimahöfn á Breiðdalsvík. Hún var smíðuð árið 1967 fyrir Braga hf. á Breiðdalsvík … Halda áfram að lesa Jóhanna ÁR 206
Month: desember 2021
Dagfari GK 70
1037. Dagfari GK 70 ex Dagfari ÞH 70. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson. Dagfari GK 70 er hér á loðnumiðunum um árið en myndina tók Baldur Sigurgeirsson vélstjóri. Dagfari var smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. Árið 1977 er skráður eigandi Útgerðarfélagið Njörður … Halda áfram að lesa Dagfari GK 70
Haförn HU 4
1890. Haförn HU 4 ex Bjarni Helgason HU 109. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er verið að dytta að Haferni HU 4 við bryggju á Hvammstanga en þaðan var báturinn gerður út um tíma. Báturinn var smíðaður á Ísafirði árið 1988 og hét Jón Helgason ÁR 12. Smíðaður fyrir Fræg hf. í Þorlákshöfn sem seldi bátinn … Halda áfram að lesa Haförn HU 4
Magni
2985. Magni. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2021. Elvar Jósefsson tók þessar myndir af dráttarbátnum Magna í vikunni en hann er í eigu Faxaflóahafna. 2985. Magni. Ljósmyndir Elvar Jósefsson 2021. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution
Baldvin Njálsson í Hafnarfirði
2992. Baldvin Njálsson GK 400. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Baldvin Njálsson GK 400, nýjasti frystitogari Íslendinga kom til Hafnarfjarðar í gærkveldi eftir að hafa haft viðkomu í Keflavík fyrr um daginn. Magnús Jónsson tók þessar myndir við komu skipsins til Hafnarfjarðar. 2992. Baldvin Njálsson GK 400. Ljósmyndir Magnús Jónsson 2021. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Baldvin Njálsson í Hafnarfirði




