
Flutningaskipið Lauwersborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til kísilvers PCC á Bakka.
Lauwersborg, sem kom hingað einnig í byrjun nóvember, er 4,695 GT að stærð og var smíðað árið 2007. Lengd þess er 123 metrar og breiddin 14 metrar.
Skipið siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution