
Línuskipið Jökull ÞH 299 kom til Húsavíkur í morgun og landaði en það er GPG Seafood ehf. sem á og gerir Jökul út. Heimahöfn hans er Raufarhöfn.
Að löndun lokinni var skipið fært inn fyrir við Þvergarðinn enda kallarnir komnir í jólafrí.
Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. Hann er útbúinn til línu- og netaveiða.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution