
Anna SI 6 kemur hér úr róðri í vikunni en hún er gerð út til strandveiða frá Siglufirði í sumar. Útgerð GO Nesið ehf. og heimahöfnin Siglufjörður.
Báturinn hefur alla tíð heitið Anna, hann var smíðaður árið 1985 í Bátagerðinni Samtak og var KE 60 fyrstu tólf árin.
Árið 1997 var báturinn, sem er tæpar 6 brl. að stærð, seldur til Siglufjarðar þar sem hann varð Anna SI 6. Sama ár var hann skutlengdur.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution