
Netabáturinn Maron GK 522 kom til hafnar í Grindavík á dögunum og tók Jón Steinar þessar myndir við það tækifæri.
Maron er elsti stálbátur landsins sem enn er í fullri drift og hét upphaflega Búðafell SU 90, smíðaður árið 1955 í Scheepswerf Kraaier skipasmíðastöðinni í Zaandam í Hollandi.






Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution