Nukariit II GR-5-75 í Grindavík

OYWW. Nukariit II GR-5-75. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Grænlenski báturinn Nukariit II GR-5-75 kom til hafnar í Grindavík í morgun en hann er á leiðinni til Grænlands frá Danmörku þar sem hann var smíðaður. Báturinn, sem er 14,99 metra langur og 6,67 metra breiður, bíður af sér veður en áfangastaðurinn er Pamiut á vesturströnd Grænlands … Halda áfram að lesa Nukariit II GR-5-75 í Grindavík

Guðrún GK 47

2640. Guðrún GK 47 ex Arney BA 158. Ljósmynd Raufarhafnarhöfn 2019. Guðrún GK 47 komst í fréttir í morgun þegar báturinn strandaði við Rifstanga á Melrakkasléttu. Björg­un­ar­skip­inu Gunn­björg frá Raufarhöfn dró hann á flot og var komið með hann til Raufar­hafn­ar að ganga hálf ell­efu í morg­un. Guðrún GK 47, sem er í eigu Skarfakletts … Halda áfram að lesa Guðrún GK 47

Jósef Geir ÁR 36 frá Stokkseyri

1266. Jósef Geir ÁR 36. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Jósef Geir ÁR 36, sem hér sést á mynd Tryggva Sigurðssonar, var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1972. Jósef Geir ÁR 36 var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. sem gerði bátinn út alla tíð. Báturinn var 47 brl. að stærð með heimahöfn á Stokkseyri.  Jósef Geir … Halda áfram að lesa Jósef Geir ÁR 36 frá Stokkseyri

Kaldbakur EA 1 á frostköldum morgni

2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Gundi tók þessar myndir í morgun þegar Kaldbakur EA 1 sigldi af stað frá Akureyri áleiðis á miðin. Það var kalt við Eyjafjörð eins og sjá má á þessum myndum. 2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Kaldbakur var  fyrstur í röðinni af fjór­um syst­ur­skip­um sem … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1 á frostköldum morgni

Karólína ÞH 100

2760. Karólína ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línubáturinn Karólína ÞH 100 færir sig hér í leguplássið sitt nú síðdegis eftir löndun og olíutöku í Húsavíkurhöfn. Karólína ÞH 100 er í eigu Doddu ehf. á Húsavík og var smíðuð hjá Samtak í Hafnarfirði árið 2007. Báturinn er 11,94 metrar að lengd, 4,18 metrar á breidd … Halda áfram að lesa Karólína ÞH 100

Snæfugl SU 20 á Eyjafirði um árið

1020. Snæfugl SU 20 ex Guðmundur Ólafur II ÓF 40. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Þessar myndir af Snæfugli SU 20 tók ég í ágústmánuði 2003 en skipið hafði verið að taka fisk úr kvíum neðan Víkurskarðs fyrr um daginn. 1020. Snæfugl SU 20 ex Guðmundur Ólafur II ÓF 40. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Snæfugl SU 20 á Eyjafirði um árið

Tindur ÁR 307 á Fáskrúðsfirði

1686. Tindur ÁR 307 ex Tindiur ÍS 307. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Tindur ÁR 307 á siglingu á Fáskrúðsfirði en Þór Jónsson skipverji á Ljósafellinu tók myndina sl. þegar þeir mættu Tindinum á landleið. Tindur ÁR 307 er gerður út til sæbjúgnaveiða af ISC Seafood ehf. og heimahöfn hans er á Stokkseyri. Tindur ÁR 307 … Halda áfram að lesa Tindur ÁR 307 á Fáskrúðsfirði

Hafborg EA 152

2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þessar myndir tók ég í dag þegar Hafborg EA 152 frá Grímsey kom til hafnar á Húsavík. Báturinn hefur verið við dragnótaveiðar á Skjálfanda að undanförnu en hann er útbúinn til neta- og dragnótaveiða. 2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hafborg EA 152 er 284 … Halda áfram að lesa Hafborg EA 152