
Þessar myndir tók ég í dag þegar Hafborg EA 152 frá Grímsey kom til hafnar á Húsavík.
Báturinn hefur verið við dragnótaveiðar á Skjálfanda að undanförnu en hann er útbúinn til neta- og dragnótaveiða.

Hafborg EA 152 er 284 brúttótonn að stærð, lengd hennar er 26 metrar og hún er átta metra breið.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Flottur bátur hvaðan kom hann?
Líkar viðLíkar við
Hann var smíðaður í Hvide Sand í Danmörku
Líkar viðLíkar við