
Þórir SF 77 kemur hér að landi í sinni heimahöfn, Hornafirði en hann stundar nú veiðar með fiskitrolli.
Þórir SF 77 og systurskipið Skinney SF 30 voru smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði.
Skipin fóru síðan í gagngerar breytingar til Póllands þar sem þau voru m.a lengd um tæpa 10 metra en þau komu úr þeim fyrr á þessu ári.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution