
Beggi ÞH 343 var hífður á land á Húsavík um miðjan daginn en hann sökk við bryggju í morgun.
Björgunarsveitarmenn og kafari voru kvaddir á staðinn og tókst að koma Begga á flot þar sem dælt var úr honum. Óvíst er hvers vegna hann sökk eftir því sem segir í frétt á mbl.is í dag.
Beggi ÞH 343, sem er í eigu Vaðkots ehf., var smíðaður úr eik og furu í Dráttarbrautinni í Neskaupsstað 1973 og hét upphaflega Guðbjörg Sigfúsdóttir NK 20.

Beggi ÞH 343 er 11,05 brl. að stærð og hefur ekki verið í útgerð mörg undanfarin ár.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution