Novo Morrina við bryggju í Vigo

Novo Morrina við bryggju í Vigo. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Novo Morrina er spænskur togari sem lá við bryggju í Vigo í gær. Hann var smíðaður árið 1998 og mælist 298 GT að stærð. 32 metra langur og 8 metra breiður. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Novo Morrina við bryggju í Vigo

Baffin Bay á Vigoflóa

MSPL9. Baffin Bay M1033. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Breski skuttogarinn Baffin Bay M1033 sigldi út Vigoflóann í morgun og stökk ég af stað til að mynda hann þegar ég varð hans var á AIS. Baffin Bay var smíðaður árið 1995 (1993 segja sumar skrár) og siglir undir bresku flaggi með heimahöfn í Milford Haven sem … Halda áfram að lesa Baffin Bay á Vigoflóa

Björgvin EA 311 á toginu

1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Samherjatogarinn Björgvin EA 311 togar á fiskislóðinni í vor. Smíðaður í Flekkufirði 1988 fyrir Dalvíkinga og hefur átt þar heimahöfn síðan þó eignarhaldið hafi breyst. Já og liturinn. Björgvin EA 311 er 50,53 metrar á lengd, 12 metra breiður og mælist 499 brl./1142 BT að stærð. Með … Halda áfram að lesa Björgvin EA 311 á toginu

Örvar BA 14 við bryggju í Reykjavík

1136. Örvar BA 14 ex Örvar HU 21. Ljósmynd Leifur Hákonarson 1974. Hér liggur Örvar BA 14 við bryggju í Reykjavík sumarið 1974. Greinilega verið að skvera bátinn sem keyptur var til Patreksfjarðar frá Skagaströnd veturinn áður. Það var Hraðfrystihúsið Skjöldur h/f sem keypti Örvar og kom hann til nýrrar heimahafnar á Patreksfirði í janúar … Halda áfram að lesa Örvar BA 14 við bryggju í Reykjavík

Capricorn við bryggju

ZDLY. Capricorn FK 050B ex Pescavigo Uno. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Capricorn FK 050B hefur legið við bryggju í Vigoflóanum innanverðum að undanförnu og tók ég þessa mynd í dag. Eftir að ég hafði rölt um ströndina í klukkustund eða svo og tekið myndir fór ég heim til að setja þær inn í tölvuna og … Halda áfram að lesa Capricorn við bryggju

Grundfirðingur SH 24 seldur til Suðurnesja

1202. Grundfirðingur SH 24 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Grundfirðingur SH 24 hefur verið seldur til Suðurnesja og verður gerður út til netaveiða. Báturinn hét upphaflega Þorlákur ÁR 5 og  var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn h/f í Þorlákshöfn. Smíðanúmer 18 frá þeim og afhentur í upphafi árs. Árið 1977 … Halda áfram að lesa Grundfirðingur SH 24 seldur til Suðurnesja

Geiri Péturs ÞH 344 í slipp á Húsavík

1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1985. Geiri Péturs ÞH 344 er á þessari mynd í slippnum á Húsavík sumarið 1985. Myndin er tekin af Beinabakkanum í kvöldsólinni. Geiri Péturs ÞH 344 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri 1971 eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsona og hét upphaflega Sigurbergur GK … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344 í slipp á Húsavík