Slippurinn Akureyri annast framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki í nýjan frystitogara Nergård Havfiske

Ljósmynd slipp.is Slippurinn Akureyri hefur gengið frá samningi um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki um borð í nýjan frystitogara norsku útgerðarinnar Nergård Havfiske. Frá þessu segir á nýrri heimasíðu fyrirtækisins: Norska skipasmíðastöðin Vard sér um smíði á skipinu og mun Slippurinn hafa yfirumsjón með vinnsludekkinu og býður upp á heildarlausn ásamt undirvertökum eins og … Halda áfram að lesa Slippurinn Akureyri annast framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki í nýjan frystitogara Nergård Havfiske

Sylvía sumarið 2007

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Þessar myndir sem nú birtast af hvalaskoðunarbátnum Sylvíu tók ég 19. júlí árið 2007. Sylvía var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Í sumarbyrjun 2007 kaupir hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants á Húsavík bátinn frá Þingeyri og … Halda áfram að lesa Sylvía sumarið 2007

Herjólfur kemur til Vestmannaeyja í gær

Herjólfur. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Þessar myndir tók Hólmgeir Austfjörð í gær þegar Herjólfur kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Herjólfur. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Herjólfur hefur verið heiti á þremur ferjum sem gengið hafa á milli Heimaeyjar í Vestmannaeyjum og Þorlákshafnar, og seinna meir Landeyjahafnar. Núverandi Herjólfur, sá þriðji í röðinni, gengur á milli Vestmannaeyja og Landeyjarhafnar. Hann var tekinn í notkun árið 1992, og … Halda áfram að lesa Herjólfur kemur til Vestmannaeyja í gær

Ný Cleopatra 40 til Skotlands

Soph-Ash-Jay 3. Ljósmynd Trefjar.is 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afrgreiddi núna nýverið nýjan Cleopatra bát til Burnmouth á austurströnd Skotlands. Að útgerðinni stendur John Affleck sjómaður frá Burnmouth sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Soph-Ash-Jay-3 og er 15brúttótonn.  Soph-Ash-Jay-3 er af gerðinni Cleopatra 40 og er fjórði báturinn sem Trefjar … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 40 til Skotlands

Björg EA 7 lætur úr höfn á Akureyri

2894. Björg EA 7. Ljósmynd Gundi 2019. Guðmundur Rafn Guðmundsson, eða Gundi eins og hann er jafnan kallaður, tók þessar myndir af skuttogaranum Björgu EA 7 í gærmorgun. 2894. Björg EA 7. Ljósmynd Gundi 2019. Björg EA 7 var að láta úr höfn á Akureyri og lá frostþoka yfir pollinum. 2894. Björg EA 7. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Björg EA 7 lætur úr höfn á Akureyri

Happadís GK 16

2652. Happadís GK 16 ex Spútnik 4 AK 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Happadís GK 16 kemur hér til hafnar í Sandgerði í lok aprílmánaðar árið 2008. Sverrir Þór Jónsson gerði Happadísina út og var skiptjóri á henni. Hann var sérklega fengsæll á henni og sem dæmi var Happadís aflahæst krókaaflamarksbáta árið 2007 með 1.108 … Halda áfram að lesa Happadís GK 16

Dala-Rafn VE 508

2758. Dala-Rafn VE 508. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessa myndir í dag þegar Ottó N Þorláksson VE 5 og Dala-Rafn VE 508 mættust rétt norðan Hrollaugseyja. 2758. Dala-Rafn VE 508. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Dala Rafn VE 508 var smíðaður í Póllandi árið 2007 fyrir samnefnt útgerðarfélag. Þá var hann grænn en Ísfélag … Halda áfram að lesa Dala-Rafn VE 508

Gullver NS 12 á Austfjarðarmiðum

1661. Gullver NS 12. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Gullver NS 12 er hér að taka það á Austfjarðarmiðum í gær en myndirnar tók Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5. Gullver NS 12 var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1983 fyrir Gullberg h/f á Seyðisfirði.  Í október árið 2014 var Gullberg h/f … Halda áfram að lesa Gullver NS 12 á Austfjarðarmiðum

Húsvíkurbátar á vertíð

1420.Kristbjörg ÞH 44 í Þorlákshöfn 1982. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á árunum 1982-1987 fóru bátar frá Húsavík á vertíð í Breiðafjörðinn og 1982 var Skálaberg ÞH 244 í Þorlákshöfn. Kristbjörg ÞH 44 var einn þessara báta sem var í Ólafsvík 1982. Eftir páskana var farið suður fyrir ásamt Geira Péturs ÞH 344 og Sigþóri ÞH 100 … Halda áfram að lesa Húsvíkurbátar á vertíð