Ottó N Þorláksson VE 5

1578. Ottó N Þorláksson VE 5 ex RE 203. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Ottó N Þorláksson VE 5 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun í kaldaskít. Hólmgeir Austfjörð, skipverji þar um borð, var í frítúr tók þessar myndir af skipi sínu. 1578. Ottó N Þorláksson VE 5 ex RE 203. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. … Halda áfram að lesa Ottó N Þorláksson VE 5

Gullhólmi SH 201

2911. Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Gullhólmi SH 201 kom til löndunar á Húsavík 3. nóvember árið 2017 og þá voru þessar myndir teknar. 2911. Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þegar Gullhólmi var afhentur eigendum sínum haustið 2015 birtist eftirfarandi frétt á vef Fiskifrétta: Nýlega afhenti Seigla ehf. á Akureyri nýjan … Halda áfram að lesa Gullhólmi SH 201

Samskip-Skaftafell og Sleipnir

Samskip-Skaftafell og Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Samskip-Skaftafell tekur hér kúrsinn út Eyjafjörð í gær og hafnsögubáturinn Sleipnir snýr aftur til hafnar eftir að hafa aðstoðað skipið við að komast út úr Fiskihöfninni. Samskip-Skaftafell var smíðað árið 2000 og er 101 metra langt og 19 metra breitt. Mælist 4,450 GT að stærð, siglir undir hollensku … Halda áfram að lesa Samskip-Skaftafell og Sleipnir

Konsúll á Pollinum

2938. Konsúll. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hvalaskoðunarbáturinn Konsúll kom úr hvalaskoðunarferð á Eyjafirði síðdegis í dag og þá var þessi mynd tekin. Konsúll var smíðaður árið 1985 en bættist í hvalaskoðunarflota Íslendinga vorið 2017 þegar SHB Hvalaskoðun ehf. keypti hann frá Noregi. Ambassador ehf. gerði hann út til hvalaskoðunar frá Akureyri en í dag er … Halda áfram að lesa Konsúll á Pollinum

Einar Hálfdáns ÍS 11

2790. Einar Hálfdáns ÍS 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016 Einar Hálfdáns ÍS 11 siglir hér inn til Hafnarfjarðar í maímánuði árið 2016. Einar Hálfdáns er af gerðinni Cleopatra 38 frá Trefjum hf. í Hafnarfirði. Hann er 15 brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.  Smíðaður fyrir Blakksnes ehf. í Bolungarvík árið 2009 en eigandi hans í dag … Halda áfram að lesa Einar Hálfdáns ÍS 11

Magnús SH 205

1343. Magnús SH 205 ex Sigurvon BA 55. Ljósmynd Alfons Finnsson 2014. Magnús SH 205 frá Hellisandi er hér á landleið á vetrarvertíðinni 2014. Báturinn hét upphaflega Garðar II SH 164 og var smíðaður fyrir Björn & Einar s/f í Ólafsvík í Slippstöðinni á Akureyri árið 1974. 1996 var báturinn seldur til Hornafjarðar en hélt … Halda áfram að lesa Magnús SH 205

Kaldbakur EA 1

1395. Kaldbakur EA 1 ex Kaldbakur EA 301. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Skuttogarinn Kaldbakur var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Kaldbakur kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri í desembermánuði 1974 en á efstu og neðstu myndum sem nú birtast er hann að leggja upp … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1

Sædís Bára GK 88

2829. Sædís Bára GK 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Sædís Bára GK 88 var smíðuð á Suðurnesjunum og sjósett í júnímánuði árið 2012. Sædís Bára var með heimahöfn í Garði en eigandi hennar var H. Pétursson ehf. Útgerðarsaga bátsins, sem var tæplge 19 BT að stærð, varð ekki löng því hann varð eldi að bráð … Halda áfram að lesa Sædís Bára GK 88