
Frystitogarinn Vigri RE 71 sem er í eigu Brims hf. liggur hér við bryggju í Reykjavík jólaljósum prýddur.
Vigri RE 71, sem er 1.217 brl. að stærð, er 66.96 metra langur og 13 metra breiður búinn 4.079 ha. Wartsiila vél.
Vigri RE 71var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution