Kwintebank við Bökugarðinn

IMO 9234288. Kwintebank. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hollenska flutningaskipið Kwintebank kom til Húsavíkur í vikunni með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Kwintebank, sem er með heimahöfn í Delfzijl, var smíðað í Hollandi árið 2002. Skipið er 6,378 GT að stærð, lengd þess er 133 metrar og breiddin 16 metrar. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Kwintebank við Bökugarðinn →

Jörvi ÞH 300

1310. Jörvi ÞH 300. Ljósmynd Pétur Jónasson. Jörvi ÞH 300 var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd og afhentur árið 1973. Hann var smíðaður fyrir feðgana Þórarinn Vigfússon og Hinrik Þórarinsson á Húsavík. Félag þeirra hét Hagbarður hf. og fengu þeir bátinn, sem var 30 brl. að stærð, afhentan á vormánuðum 1973.  Í Morgunblaðinu … Halda áfram að lesa Jörvi ÞH 300 →

Sævík komin úr breytingum

2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla. GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Sævík GK 757 kom til Grindavíkur í gærkveldi eftir að hafa verið í slipp í Skipasmíðastöð Njarðvíkur að undanförnu. Þar var hún meðal annars lengd um þrjá metra, ný 60 kw. ljósavél sett í hana og svokallaður "skriðdreki" settur á dekkið … Halda áfram að lesa Sævík komin úr breytingum →