2094. Júlía GK 400 ex Jóna Björg GK 304. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Línubáturinn Júlía GK 400 kemur hér að landi í Sandgerði um árið en hún var gerð út af Reyni Karlssyni og Júlíu Óladóttur Báturinn hét upphaflega Jóna Björg Gk 304 og var smíðuð í Þrándheimi í Noregi árið 1990. Eigandi Páll Jósteinsson í … Halda áfram að lesa Júlía GK 400
Month: janúar 2022
Gísli Árni RE 375
1002. Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Gísli Árni RE 375 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 1982. Gísli Árni var smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík í Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi árið 1966. Að Sjóla hf. stóðu Einar Árnason og Eggert Gíslason skipstjóri. Eggert eignaðist síðar … Halda áfram að lesa Gísli Árni RE 375
Karlsefni RE 24
1253. Karlsefni RE 24 ex Jochen Homann. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Karlsefni RE 24 er hér við bryggju í sinni heimahöfn, Reykjavík, um árið. Karlsefni hf. keypti togarann frá Þýsklandi árið 1972 en hann var smíðaður þar árið 1966. Togarinn var 713 brl. að stærð búinn 2140 hestafla Deutz aðalvél. Árið 1987 eignaðist Sjólastöðin hf. … Halda áfram að lesa Karlsefni RE 24
Sigurborg AK 375
1019. Sigurborg AK 375 ex Freyja RE 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurborg Ak 375 frá Akranesi landar hér síld í Grindavík haustið 1985 að mig minnir. Sigurborg AK 375 upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupsstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi 1966. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Sigurborg AK 375
Brekey BA 236
1890. Brekey BA 236 ex Kambavík SU 24. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Brekey BA 236 var smíðaðuð á Ísafirði árið 1988 og hét Jón Helgason ÁR 12. Smíðaður fyrir Fræg hf. í Þorlákshöfn sem seldi bátinn til Skagastrandar ári síðar. Þar fékk hann nafnið Bjarni Helgason HU 109 en árið 1990 fékk báturinn nafnið Haförn HU … Halda áfram að lesa Brekey BA 236
Bryndís SI 14
1457. Bryndís SI 14 ex Ölver ÍS 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1988. Bryndís SI 14 hét upphaflega Hugrún NS 7 og var smíðuð í Dráttarbrautinni hf. á Neskaupstað. Smíðaár Hugrúnar er 1974 en 1976 kaupir Ísak Aðalsteinsson bátinn af Dráttarbrautinni. Ári síðar er báturinn seldur suður í Hafnir og lét kaupandinn, Þórarinn Sigurðsson, bátinn halda … Halda áfram að lesa Bryndís SI 14
Helga II í Reykjavíkurhöfn
1018. Helga II RE 373. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helga II RE 373 er hér í Reykjavíkurhöfn um árið, kallarnir eitthvað að brasa við hlera eða troll. Helga II RE 373 var smíðuð árið 1967 fyrir Ingimund h/f í Harstad í Noregi. Hér má fræðast meira um Helgu II RE 373. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Helga II í Reykjavíkurhöfn
Jökull ÞH 299
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessar myndir sem nú birtast teknar í dag þegar Jökull ÞH 299 lét úr höfn á Húsavík áleiðis í slipp á Akureyri. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. Hann … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299
Boði GK 24
971. Boði GK 24 ex Boði KE 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Boði GK 24 hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102 og var smíðaður fyrir Miðfell hf. í Hnífsdal árið 1965. Smíðin fór fram í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í A-Þýskalandi. Báturinn var sá fjórði sem kom í fyrri seríunni sem taldi tíu báta en … Halda áfram að lesa Boði GK 24
Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo
Við Húsavíkurhöfn á Gamlársdag 2021. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo









