Boði GK 24

971. Boði GK 24 ex Boði KE 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Boði GK 24 hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102 og var smíðaður fyrir Miðfell hf. í Hnífsdal árið 1965. 

Smíðin fór fram í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í A-Þýskalandi. Báturinn var sá fjórði sem kom í fyrri seríunni sem taldi tíu báta en alls voru þeir átján sem smíðaðir voru fyrir íslendinga.

Boði GK 24 var í eigu Fiskverkunar Garðars Magnússonar hf. í Njarðvík á árunum 1982-1988 og er myndin tekin á þeim tíma.

Annars er miðin frá félaga Hauk á Dalvík svona:

0971….Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 25. TF-FI. IMO-nr. 6617984. Skipasmíðastöð: V. E. B. Elbe Werft. G.m.b.H. Boizenburg. 1965. 1966 = Lengd: 31,56. Breidd: 7,22. Dýpt: 3,61. Brúttó: 264. Smíðaður eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar. Mótor 1965 Lister 660 hö. Ný vél 1983 Mirrlees Blackstone 530 kw. 720 hö. 

Nöfnin sem ég hef: Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102. – Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 364. – Boði KE 132. – Boði GK 24. – Eldeyjar Boði GK 24. – Aðalvík KE 95. – Sævík GK 257. – Valur ÍS 82. – Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 25. – Fram ÍS 25. Seldur í brotajárn til Belgíu júlí. 2014. 84. Kristbjörg VE 71 dró Fram með sér til Belgíu.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s