Glitský á himni

Glitský á himni við Skjálfanda. 28. janúar 2022.

Glitský birtust á himni við Skjálfanda síðdegis í dag og var þessi mynd tekinvið Húsavíkurhöfn.

Á Vísindavefnum segir um glitský:

Glitský eru ákaflega fögur marglit ský sem myndast í heiðhvolfinu, oft í um 15 – 30 km hæð. Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða við sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð.

Litadýrðin þykir minna á þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á sumum skeljum (svonefnt perlumóðurlag í perluskeljum), og eru þau því nefnd perlumóðurský (e. nacreous clouds) í ýmsum tungumálum.

Þau myndast þegar óvenju kalt er í heiðhvolfinu (um eða undir -70 til -90 °C) og eru úr ískristöllum, eða úr samböndum ískristalla og saltpétursýru-hýdrata (til dæmis HNO3 3H2O).

Þessi síðarnefndu ský geta valdið ósoneyðingu, en yfirborð ískristallanna getur verkað sem hvati í efnaferli þar sem klór í heiðhvolfinu breytist í skaðleg ósóneyðandi efni (til dæmis klórmónoxíð, ClO).Kristallarnir í skýjunum beygja sólarljósið, en mismikið eftir bylgjulengd þess. Þannig beygir blátt ljós meira en rautt. Rauða ljósið kemur því til okkar undir öðru horni en það bláa, þannig að okkur sýnist það koma frá öðrum hluta glitskýsins.

Litaröðin frá jaðri inn til miðju skýsins er stundum eins og vísuorðin: gulur, rauður, grænn og blár en oft er skýið einnig hvítt í miðju. Litirnir eru líka háðir stærðardreifingu agna í skýjunum, þannig að oft má sjá rauða, gula og græna flekki í bland.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s