Klettur II ÍS 908

2906. Klettur II ÍS 908 ex Dago. Ljósmynd Magnús Jónsson 2026.

Hér gefur að líta Klett II ÍS 908 í slipp í Reykjavík en myndina tók Magnús Jónsson í gær.

Klettur hét áður Dagur SK 17 og var smíðaður árið 1997 hjá ASTILLEROS ARMON S.A í Navia á norður Spáni.

Rækjuverksmiðjan Dögun á Sauðárkróki keypti bátinn frá Írlandi árið 2016 gerði út til rækjuveiða.

Báturinn var seldur til Eistlands árið 2020 þar sem hann fékk nafnið Dago en hefur legið á Sauðárkróki undanfarin ár.

Klettur II ÍS 908 verður með heimahöfn á Flateyri.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd