
Bára SH 370 frá Grundarfirði er hér á siglingu í Hafnarfjarðarhöfn en í Hafnarfirði var báturinn smíðaður árið 1999.
Báturinn var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1999 og er af gerðinni Sómi 870.
Árið 2006 er báturinn kominn til Ólafsvíkur og fékk nafnið Hilmir SH 197. Í ágústmánuði 2014 fær hann nafnið Bára SH 297 en skömmu síðar er hann seldur til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Sigrún Hrönn ÞH 36.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.