Eyborg EA 59

2190. Eyborg EA 59. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Eyborg EA 59 frá Hrísey kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hún var síðust í röð fjögurra systurskipa, sem smíðuð voru fyrir íslendinga í Aveiro í Portúgal.

Það var Borg hf. í Hrísey sem lét smíða skipið og kom það í fyrsta skipti til heimahafnar í Hrísey þann 24. apríl árið 1994.

Hin skipin þrjú voru Haukafell SF 111, Þinganes SF 25 og Æskan SF 140 sem nú heitir Drangavík VE 80.

Haukafell og Þinganes hafa bæði verið seld úr landi og það á einnig við Eyborgina sem á dögunum var seld til Suður Afríku.

Eyborgin var lengd um 19 metra árið 1996 en meira um það síðar.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd