Auður Vésteins á útleið

2888. Auður Vésteins SU 88. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar tók þessar myndir nú undir kvöld af Auði Vésteins SU 88 leggja upp í róður frá Grindavík. Báturinn sem er gerður út af Einhamri Seafood er af gerðinni Cleopatra 50 og var smíðaður árið 2014. Hann er með heimahöfn á Stöðvarfirði. 2888. Auður … Halda áfram að lesa Auður Vésteins á útleið

Númi HF 62

1487. Númi HF 62 ex Númi KÓ 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Hvalaskoðunarbáturinn Númi HF 62 kemur hér til hafnar í Reykjavík sumarið 2010 en eins og glöggir síðulesarar sjá er hér um Stykkilshólmssmíði að ræða. Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 brl. bátana sem Skipavík … Halda áfram að lesa Númi HF 62

Vinnslustöðin hf. kaupir útgerðarfyrirtækið Hugin í Vestmannaeyjum

2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Vinnslustöðin hf. hefur keypt Huginn ehf., útgerðarfélag í Vestmannaeyjum sem gerir út fjölveiðiskipið Hugin VE-55, ásamt aflaheimildum í síld, loðnu, kolmunna og makríl. Kaupsamningur var undirritaður í Eyjum á föstudaginn var, 29. janúar. Kaupverðið er trúnaðarmál kaupenda og seljenda. Vinnslustöðin átti fyrir 48% hlut í Hugin en … Halda áfram að lesa Vinnslustöðin hf. kaupir útgerðarfyrirtækið Hugin í Vestmannaeyjum