
Eikarbáturinn Jökull SK 16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn í dag en þar hefur hann legið um allanga hríð.
Þorsteinn ÞH 115 frá Raufarhöfn lá utan á Jökli en sem betur fer tókst að skera hann frá áður en illa færi.
Báturinn hét upphaflega Árni Geir KE 31 en árið 1970 fékk hann nafnið Þorsteinn Gíslason KE 31. 1975 fékk hann GK 2 á kinnunginn og heimahöfnin í Grindavík.
Í upphafi árs 2009 fékk hann nafnið Arnar í Hákoti SH 37 og heimahöfnin Ólafsvík. Rúmlega ári síðar fær hann núverandi nafn Jökull SK 16 og heimahöfnin Sauðárkrókur.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.